|
Í dag var brautskráning frá HÍ og ég horfði á Gísla bró taka við prófgráðunni sinni. Hann var samt helvíti góður í áróðrinum rétt fyrir útskriftina. Ég var að spyrja hann hvort hann væri bara ekki síðasti rússnenskuneminn sem útskrifaðist frá HÍ og hann svaraði óvenjulega hátt að hann vonaði að þessir ($%#$#"$$) færu nú að hætta að velja svona tungumál út og settu rússnenskuna aftur í kennsluskrána. Ég horfði á hann með undran þar sem að Gísli er ekki vanur að hrópa svör sín svona, en sá fljótlega hvað lá þar að baki - við hlið okkar stóð Björn fyrrv. menntamálaráðherra.
Ég óska öllum til hamingju með daginn, sá mörg kunnugleg andlit taka við skírteini s.s. Gunnu frænku, Þorgeir prest, Gumma, Gunna, Ingveldi o.fl. Ég laumaðist nú samt út áður en athöfninni var lokið, þar sem ég hef þegar setið tvær slíkar og þoli ekki aðra strax.
P.s. Í dag er einnig Kvennadagurinn og ég vil óska kvennþjóðinni til hamingju með það líka.
|