|
Annars er bara frábært að vera einn heima, a.m.k. um stund. Er búin að taka til, klára bókina mína, fara í íþróttir, borða góðan mat, horfa á videómynd sem Freyr hefði aldrei gúdderað, klappa köttunum mínum og hafa það gott. Merkilegt í ljósi þess að einu sinni var það það versta sem ég gat hugsað mér að vera ein. Um leið og dauð stund kom var ég búin að taka upp símann og hringja í alla vinina í von um félagsskap. Þetta eru víst einhverjar leifar af því að vera á heimavist/leigja með fólki í allt of mörg ár. EN ég heimta samt að einhver drekki bjór með mér í kvöld! |
| Ausa June 18, 2004 02:10 AM PDT Jú, hann brennir allar bækurnar mínar ;) | ||
| Name: Mamma June 17, 2004 05:51 PM PDT Ekki gefast upp með íþróttirnar eða bóklesturinn þótt Freyr kmi heim. Ég er viss um að hann setur sig ekki upp á móti því. | ||
| Erla June 16, 2004 07:50 AM PDT flokkast þetta ekki undir ærumeiðingar... ég var með höfuðverk | ||
| Bragi June 16, 2004 04:08 AM PDT Kaffi Vín í kvöld! Afmæli HRAUN! Gaman Gaman! Upphrópunarmerki! | ||
| Guðný Ebba June 16, 2004 03:49 AM PDT Ég býð mig líka fram! | ||
| Laufey June 16, 2004 03:23 AM PDT Ég skal bjóða mig fram í bjórdrykkju. Kannski brjóstahaldarasagan rifjist upp á 4 glasi?? ;) | ||
| Leave a Comment: |