Monday, June 14, 2004
Sumarfrí

Ég og eiginmaðurinn skelltum okkur í hringferð um landið í síðustu viku. Það er margt merkilegt sem maður uppgötvar um landið og landana í slíkum túr.

Hápunktar ferðarinnar

1. Stoppaði á Önnukaffi á Suðurlandinu. Þar bjó eitt sinn merkileg kona sem hefur í daglegu tali verið kölluð Anna frá Moldarnúpi en fyrir þetta stopp hafði ég aldrei heyrt um hana. Hún var fátæk piparjúnka sem tók sig til á miðjum aldri og hóf ritdeilur við helvítis kommúnistana og trúleysingana fyrir sunnan og er í um mjög skemmtilega lesningu að ræða. Flestir karlmennirnir sem hún réðst að með penna sínum áttu það nefnilega til að vanmeta hana all svakalega og voru barðir í gólfið í næstu lotu, þegar í ljós kom að um gríðarlega vel lesna konu að ræða. Fyrir utan þessar skemmtilegu ritdeilur er hún einnig "þekkt" fyrir að skrifa ferðasögur. Þetta ásamt fleiru lærði ég í gegnum að blaða í bók Sigþrúðar Gunnarsdóttur, Fjósakona fór út í heim: sjálfsmynd, skáldskapur og raunveruleiki í ferðasögum Önnu frá Moldnúpi en bókin var aðgengileg á þessu skemmtilega sveitakaffihúsi. P.s. Ég væri alveg til í að eignast þessa bók ef einhver er gjafmildur á næstunni.

2. Kíktum til Ella og Ingu í Fljótsdalnum og horfðum á Kárahnjúkavirkjunina út um eldhúsgluggann. Ansi skemmtilegt útsýni það. Hittum einnig Myrkrahöfðingjann á Egilstöðum en hann hefur atvinnu af því í sumar að leita uppi hallærislegar myndir af bekkjarfélögum sínum...  eða eitthvað í þá áttina.

3. Fórum að Sænautaseli, heiðarbýli á Jökuldalsheiði sem hefur verið endurbyggt til að gefa okkar kynslóð mynd af lífsbaráttu fólks til "forna" en þarna var búið til 1943. Þetta er án efa hljóðlátasti staður sem ég hef komið á enda er þetta eins afskekkt og hægt er. Get varla ímyndað mér hvernig veturinn hefur verið á slíkum stað. Mæli hiklaust með þessum túr fyrir alla, ekki verra að fá lummur og kaffi eftir leiðsögn manns sem ólst upp á staðnum.

4. Tjölduðum á Mývatni og drukkum bjór með túristum frá Sviss, Kanada og einum dreng sem var of fullur til að muna hvaðan hann var (og hafði verið í nokkra daga að sögn hinna). Mér leist ekki á það þegar drengurinn rauk af stað um miðnætti og ætlaði að baða sig í Græna lóninu, en hann kom heill til baka þar sem hann villtist og fann það ekki - öllum til mikils léttis. Eins og umhverfið er fallegt þarna get ég þó ekki sæst við helvítis flugurnar þannig að ég mun EKKI tjalda aftur á Mývatni.



Posted at 09:31 am by ausan
Jamm, svo þið segir það?  

Tuesday, June 08, 2004
Stokkseyri og Hornafjörður

Rosalega er gaman í sumarfríi. Við Freyr erum á rúntinum um landið, engin tiltekin stefna heldur beygt þar sem okkur dettur í hug og gist þar sem skjól fæst. VÍJ...

Uppáhaldsstoppið mitt hingað til er Stokkseyri, þar fórum við í Draugasafnið sem er SNILLD!! og þar borðuðum við humar sem er nokkuð sem við höfum ekki efni á aftur í fríinu ;)

Núna er ég á Höfn í Hornafirði og ætla að fara í bakaríið.

Posted at 04:02 am by ausan
Jamm, svo þið segir það?  

Friday, June 04, 2004
ARG... óþolinmæði dauðans

REGLUR FYRIR HÁSKÓLA ÍSLANDS
Nr. 458/2000


60. gr. Prófverkefni og mat úrlausna


....Einkunnir skulu birtar í síðasta lagi fjórum vikum eftir hvert haustmisserispróf en í síðasta lagi þremur vikum eftir önnur próf.

Ef ég færi ekki að reglum, yrði mér kastað úr námi - ekki satt?

Posted at 06:00 am by ausan
Jamm, svo þið segir það?  

margt smátt

Ég er með hálfgerða "bloggstíflu" þessa dagana. Hugsa margt en kem fáu niður á blað, hvað þá á skjáinn.

Ég er samt búin að gera margt skemmtilega í vikunni. Fór á tónleika með 5tu herdeildinni í fyrradag og hlustaði með öðru eyranu á Búðabandið í gær þegar ég hitt H-vaða dömurnar. Á þriðjudaginn átti sæti maðurinn minn afmæli og ég bauð honum út á borða á Hereford steikhúsi og mæli hikstalaust með þessum stað, þ.e. ef þú átt pening og vilt góða steik.

Rosalega hlakka ég til þegar dagurinn er búinn... þá er ég komin í fyrsta sumarfríið mitt VÍJ. Ég tek reyndar bara viku af því að ég er að hætta, EN ég er að fara að slæpast í viku á launum og ætla að njóta þess til botns.

Posted at 02:54 am by ausan
Jamm, svo þið segir það?  

Wednesday, June 02, 2004
Mánaðarmót

Mánaðarmót eru nánast alltaf niðurdrepandi í lífi (alvegaðhætta) bankastarfsmanns. Í fyrsta lagi er allt of mikið að gera. Í öðru lagi er þjónustufulltrúastarfið ótrúlega ílla borgað og því kemur lítið inn á reikninginn (kvennastarf!). Og síðast en ekki síst er maður að þjónusta fólk sem á allt of mikið af peningum og fær MUN meira inn á reikninginn sinn en maður sjálfur.

Posted at 01:19 am by ausan
Jamm, svo þið segir það?  

Friday, May 28, 2004
Sælla minninga

Í gær límdi ég fullt af límmiðum á bréf í góðum félagsskap. Þegar ég var c.a. 14 ára eyddi ég heilu sumri við að líma límmiða á salatdósir í Eðalfiski. Eins furðulegt og það kann að hljóma var það bara ágætis vinna ;)

P.s. hefur einhver tekið eftir FLOTTA ljóðinu mínu sem er ljóð dagsins á ljóð.is. Ég er SVO stolt!

Posted at 03:23 am by ausan
Jamm, svo þið segir það?  

Thursday, May 27, 2004
Kommentakerfið mitt :(

Af hverju er allt í rugli með kommentakerfið mitt ? Það var allt í lagi með það í morgun... djö. Hlakka SVO til ef draumurinn verður að veruleika í sumar

Posted at 04:28 am by ausan
Jahá? þagað mann í hel!  

Wednesday, May 26, 2004
Í skúffunni minni - játning

Ég heiti Auður og ég á ljóð í skúffunni minni....

Ég á reyndar fullt af ljóðum í skúffunni minni, efni í heila ljóðabók. Vandamálið er að ég hef varla samið almennilegt ljóð síðan ég fór í ástarsorg í 9. bekk. Við það tilefni samdi ég heilu kvæðabálkana um þjáningar mínar og angist. Jú ég samdi líka svoldið af ljóðum á gelgjuárunum, allt þar til ég varð ástfangin af Frey og hætti að fara í ástarsorg á reglulegum basis. Síðan þá hef ég reynt en dæmi öll ljóðin ómerk því þau skortir þessa dýpt, þessa tilfinningu sem mér finnst að eigi að fylgja með ljóðum.

Ég hef oft deilt um það við Frey (sem er einnig skúffuskáld) hvernig "almennileg" ljóð eru. Hann er meira hrifin af gamla forminu, eða a.m.k. einhverju sómasamlegu formi. Mér aftur á móti er alveg nákvæmlega sama um formið svo lengi sem ljóðið veki mig til umhugsunar og fylgi einhver tilfinning, veki einhver viðbrögð. Ég nenni ekki að lesa orðaskrúð, þó að fallegt sé, ef það veldur því ekki að hjartað taki kipp - hvort sem er af óhugnaði, gleði, sorg eða öðru. Fyrir mér eru ljóð = tilfinning

Í sumar ætla ég að reyna að semja fleiri ljóð til að setja í skúffuna mína.

Posted at 06:09 am by ausan
Jamm, svo þið segir það?  

Óþolinmæði

Úff.. hvað mig er farið að langa í einkunn úr rekstri opinberra stofnanna. Vandamálið er þó að prófið er svo til nýbúið - skilaði því inn 15.mai. Ástæðan fyrir þessari óþolinmæði er ekki að ég telji að ég hafi staðið mig svona frábærlega vel, heldur langar mig SVO að klára þessa önn og hún er einfaldlega ekki búin fyrr en ég fæ síðustu einkunina.

Posted at 02:47 am by ausan
Jahá? þagað mann í hel!  

Monday, May 24, 2004
Videómaraþon með bíóívafi

Um helgina tók ég ágætis syrpu í vídeóglápi.


Fyrst horfði ég á Gremlins, sem er að sjálfsögðu snilld. Ef það er langt síðan þið sáuð hana síðast er það algjör nauðsyn að fara að endurnýja kynnin við þessa loðnu veru. Ég veit ekki hvort það segir eitthvað um húmorinn hjá mér en uppáhaldsatriðið mitt er þegar að stelpan er að segja frá því afhverju hún hatar jólin... (hræðilegir leikarar að reyna við dramasenu og útkoman verður frásögn af dauðsfalli sem skilur mann eftir í hláturskrömpun).
 

Næst horfði ég á Crouching Tiger, Hidden Dragon. Freyr öfundaði mig mikið af því að hafa aldrei séð hana áður og ég skil hann vel. Ég verð að segja að þetta er með þeim bestu myndum sem ég hef séð, allavega hvað varðar myndatöku og listrænan stíl.



Þriðja myndin var gamall smellur - The Good, Bad and the Ugly. Einnig um úrvals mynd að ræða hér sem ég hafði aldrei séð áður.
Til að toppa algjöra sukkhelgi skellti ég mér svo í bíó með eiginmanninum, Ella og Guðrúnu Svövu. Það var erfitt að velja mynd en lendingin varð sú að stelpurnar unnu - ég og Guðrún fengum náðarsamlegast að glápa á karlmenn að okkar skapi í tvo tíma eða svo... TROY er bara ágætis mynd sama hvað afbrýðissamir karlmenn reyna að halda fram ;)





Posted at 08:03 am by ausan
Jamm, svo þið segir það?  

Previous Page Next Page