Wednesday, June 30, 2004
Kveðjur að handan

Þá er komið af afdrifaríku skrefi í lífi mínu sem bloggara. Ég ásamt fimm öðrum er komin með mitt eigið lén og mun halda áfram skrifum þar í framtíðinni.

Nýja síðan heitir Kommúnan og þeir sem standa að henni ásamt mér eru Elli, Lárus, Freyr, Sverrir og Jakob. Ástæða þess að ég tek þátt í slíku ævintýri er að sjálfsögðu augljós, þ.e. þegar ég hef talið upp nöfnin á meðlimunum, ég treysti þessum drengjum ekki til að sinna slíku verkefni einir og held að ég komi til með að vera besti hluti kommúnunnar ;)


Kommúnan er uppbyggð þannig að hvert okkar er með sína eigin undirsíðu, en með tímanum verður einnig sett upp aðalsíða þar sem hægt er að nálgast skrif okkar allra, sem og einhvern annan ómissandi fróðleik.

Ég bið ykkur að afsaka þessar sífelldu breytingar á síðum hjá mér, en þetta er mun betra fyrirkomulag en núverandi síða og a.m.k. í bili nokkuð endanlegur flutningur.

Ég býð ykkur að kíkja í heimsókn sem fyrst og fyrir ykkur sem linkið á mig hér, er velkomið að breyta tengingunni svo ég fái nú einhverjar heimsóknir...



http://kommunan.is/audur

Posted at 11:08 am by ausan

Laufey
July 1, 2004   04:32 PM PDT
 
Við Guðný erum að reyna að plana H-vaða hitting um helgina. Ert þú laus skvísa?
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home