Fín helgi! Útskriftin hjá Gísla bró heppnaðist með einsdæmum vel. Mikið af fólki og meira en nóg af rauðu og hvítu. Eftir góðan mat á La Prima Vera tók ég svo bæjarrölt sem m.a. leiddi mig m.a.
- Í Femínistapartý á Rosenberg.
- í útskriftarpartý til Lindu. Ég þekki Lindu ekki boffs en hef mætt í furðulega mörg partý til hennar. Gísli bró dregur mig alltaf með og sé ekki eftir því, enda eru partýin hjá henni með þeim bestu í bænum ;)
- Heim til Lofts og Kristrúnar að skoða ótrúlega sæta kettlinga og ketti.
- Á Grand Rokk þar sem Hjálmar voru að spila - hrikalega góðir. Ég hef satt að segja aldrei séð fólk jafn tregt til að hleypa hljómsveit af sviðinu. Þegar hljómsveitin var hætt, hélt salurinn bara áfram að syngja. Steini trúbador er næstum því betri í bandi en einn, tók sig ótrúlega vel út á sviðinu.
- Á Dillon. Ég var nú reyndar búin að heyra horrorsögur um að það væri búið að skipta um eigendur og öll stemmningin hefði hrunið við það. Ég get ekki sagt að ég hafi tekið eftir miklum breytingum, nema að dyravörðurinn á vakt var frekar súr. Ég hljóp út frá vinunum þegar ég sá Sverri fyrir utan og hann neitaði að hleypa mér aftur inn "búið að loka".
- Kvöldið endaði svo á 22 þar sem eitthvað fífl stal jakkanum mínum og ég tölti því á skyrtunni heim til mín sunnudagsmorguninn.
Röfl dagsins: Hvað er málið með fólk sem finnst kvenmenn í dag hafa það svo frábært (samanborið við fyrri tíma) og notar það til að réttlæta að feminismi sé óþörf og frekar hvimleið hugmyndafræði. Er það ekki álíka gáfulegt og að stangarstökk yrði lagt af við næsta heimsmet, þar sem að enginn hafi stokkið jafn hátt áður?