Wednesday, June 16, 2004
Eldfim náttföt?

Ég tók eftir því í gær að innan á náttfötunum mínum stendur "Keep away from fire"... merkilegt! Efast stórlega um að Freyr hefði keypt fötin handa mér ef hann hefði vitað þetta, þvílíkt drasl ;)

Annars er bara frábært að vera einn heima, a.m.k. um stund. Er búin að taka til, klára bókina mína, fara í íþróttir, borða góðan mat, horfa á videómynd sem Freyr hefði aldrei gúdderað, klappa köttunum mínum og hafa það gott. Merkilegt í ljósi þess að einu sinni var það það versta sem ég gat hugsað mér að vera ein. Um leið og dauð stund kom var ég búin að taka upp símann og hringja í alla vinina í von um félagsskap. Þetta eru víst einhverjar leifar af því að vera á heimavist/leigja með fólki í allt of mörg ár.

EN ég heimta samt að einhver drekki bjór með mér í kvöld!   

Posted at 02:26 am by ausan

Ausa
June 18, 2004   02:10 AM PDT
 
Jú, hann brennir allar bækurnar mínar ;)
Name: Mamma
June 17, 2004   05:51 PM PDT
 
Ekki gefast upp með íþróttirnar eða bóklesturinn þótt Freyr kmi heim. Ég er viss um að hann setur sig ekki upp á móti því.
Erla
June 16, 2004   07:50 AM PDT
 
flokkast þetta ekki undir ærumeiðingar... ég var með höfuðverk
Bragi
June 16, 2004   04:08 AM PDT
 
Kaffi Vín í kvöld!
Afmæli HRAUN!
Gaman Gaman!
Upphrópunarmerki!
Guðný Ebba
June 16, 2004   03:49 AM PDT
 
Ég býð mig líka fram!
Laufey
June 16, 2004   03:23 AM PDT
 
Ég skal bjóða mig fram í bjórdrykkju. Kannski brjóstahaldarasagan rifjist upp á 4 glasi?? ;)
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry