|
|
|
Wednesday, June 30, 2004
Þá er komið af afdrifaríku skrefi í lífi mínu sem bloggara. Ég ásamt fimm öðrum er komin með mitt eigið lén og mun halda áfram skrifum þar í framtíðinni.
Nýja síðan heitir Kommúnan og þeir sem standa að henni ásamt mér eru Elli, Lárus, Freyr, Sverrir og Jakob. Ástæða þess að ég tek þátt í slíku ævintýri er að sjálfsögðu augljós, þ.e. þegar ég hef talið upp nöfnin á meðlimunum, ég treysti þessum drengjum ekki til að sinna slíku verkefni einir og held að ég komi til með að vera besti hluti kommúnunnar ;)
Kommúnan er uppbyggð þannig að hvert okkar er með sína eigin undirsíðu, en með tímanum verður einnig sett upp aðalsíða þar sem hægt er að nálgast skrif okkar allra, sem og einhvern annan ómissandi fróðleik.
Ég bið ykkur að afsaka þessar sífelldu breytingar á síðum hjá mér, en þetta er mun betra fyrirkomulag en núverandi síða og a.m.k. í bili nokkuð endanlegur flutningur.
Ég býð ykkur að kíkja í heimsókn sem fyrst og fyrir ykkur sem linkið á mig hér, er velkomið að breyta tengingunni svo ég fái nú einhverjar heimsóknir...
http://kommunan.is/audur
Posted at 11:08 am by ausan
Permalink
Wednesday, June 23, 2004
Barbamamma - góð lýsing ?
Posted at 12:41 pm by ausan
Permalink
Monday, June 21, 2004
Fín helgi! Útskriftin hjá Gísla bró heppnaðist með einsdæmum vel. Mikið af fólki og meira en nóg af rauðu og hvítu. Eftir góðan mat á La Prima Vera tók ég svo bæjarrölt sem m.a. leiddi mig m.a.
- Í Femínistapartý á Rosenberg.
- í útskriftarpartý til Lindu. Ég þekki Lindu ekki boffs en hef mætt í furðulega mörg partý til hennar. Gísli bró dregur mig alltaf með og sé ekki eftir því, enda eru partýin hjá henni með þeim bestu í bænum ;)
- Heim til Lofts og Kristrúnar að skoða ótrúlega sæta kettlinga og ketti.
- Á Grand Rokk þar sem Hjálmar voru að spila - hrikalega góðir. Ég hef satt að segja aldrei séð fólk jafn tregt til að hleypa hljómsveit af sviðinu. Þegar hljómsveitin var hætt, hélt salurinn bara áfram að syngja. Steini trúbador er næstum því betri í bandi en einn, tók sig ótrúlega vel út á sviðinu.
- Á Dillon. Ég var nú reyndar búin að heyra horrorsögur um að það væri búið að skipta um eigendur og öll stemmningin hefði hrunið við það. Ég get ekki sagt að ég hafi tekið eftir miklum breytingum, nema að dyravörðurinn á vakt var frekar súr. Ég hljóp út frá vinunum þegar ég sá Sverri fyrir utan og hann neitaði að hleypa mér aftur inn "búið að loka".
- Kvöldið endaði svo á 22 þar sem eitthvað fífl stal jakkanum mínum og ég tölti því á skyrtunni heim til mín sunnudagsmorguninn.
Röfl dagsins: Hvað er málið með fólk sem finnst kvenmenn í dag hafa það svo frábært (samanborið við fyrri tíma) og notar það til að réttlæta að feminismi sé óþörf og frekar hvimleið hugmyndafræði. Er það ekki álíka gáfulegt og að stangarstökk yrði lagt af við næsta heimsmet, þar sem að enginn hafi stokkið jafn hátt áður?
Posted at 11:19 am by ausan
Permalink
Saturday, June 19, 2004
Í dag var brautskráning frá HÍ og ég horfði á Gísla bró taka við prófgráðunni sinni. Hann var samt helvíti góður í áróðrinum rétt fyrir útskriftina. Ég var að spyrja hann hvort hann væri bara ekki síðasti rússnenskuneminn sem útskrifaðist frá HÍ og hann svaraði óvenjulega hátt að hann vonaði að þessir ($%#$#"$$) færu nú að hætta að velja svona tungumál út og settu rússnenskuna aftur í kennsluskrána. Ég horfði á hann með undran þar sem að Gísli er ekki vanur að hrópa svör sín svona, en sá fljótlega hvað lá þar að baki - við hlið okkar stóð Björn fyrrv. menntamálaráðherra.
Ég óska öllum til hamingju með daginn, sá mörg kunnugleg andlit taka við skírteini s.s. Gunnu frænku, Þorgeir prest, Gumma, Gunna, Ingveldi o.fl. Ég laumaðist nú samt út áður en athöfninni var lokið, þar sem ég hef þegar setið tvær slíkar og þoli ekki aðra strax.
P.s. Í dag er einnig Kvennadagurinn og ég vil óska kvennþjóðinni til hamingju með það líka.
Posted at 05:32 pm by ausan
Permalink
Hvað er í gangi ?
Posted at 03:50 pm by ausan
Permalink
Úff ég er búin að sitja við og reyna að laga þessa ljótu, ljótu síðu. Það tekur bara allt svo fáranlega langan tíma að ég gefst upp í miðju kafi. Held satt að segja að ég nenni ekki að reyna aftur við hana fyrr en "stóru" breytingarnar ganga í gegn fyrir haustið... eða er ekki allt í fullum gangi Lalli ??
Posted at 02:21 am by ausan
Permalink
Friday, June 18, 2004
Ætli hún Vigdís sé búin að missa vitið eða bara óvenjulega yfirlýsingaglöð þessa daganna. Svo reynir greyið kellan að halda því fram að hún hefði neitað að skrifa undir Kárahnjúkavirkjunarfrumvarpið þar sem um óafturkræf náttúrspjöll sé að ræða! (auðvelt að koma með slíkar yfirlýsingar eftir á). En í sannleika sagt hef ég hef ekki nokkra trú á þessu bulli hennar.
Hún skrifaði nú undir EES frumvarpið á sínum tíma og ég held að það þurfi ekki mikinn séní til að átta sig á því að áhrifin af inngöngu okkar í EES er erfitt að þurka út og færa allt aftur í upprunalegt horf.
Posted at 02:36 am by ausan
Permalink
Thursday, June 17, 2004
Hrikalega var gaman í gær!
Ég hef ekki hlegið svona lengi síðan ég veit ekki hvenær. Þegar ég verð orðin forsætisráðherra Íslands ætla ég að ráða Jakob sem hirðfíbl.
Posted at 06:10 am by ausan
Permalink
Wednesday, June 16, 2004
Ég tók eftir því í gær að innan á náttfötunum mínum stendur "Keep away from fire"... merkilegt! Efast stórlega um að Freyr hefði keypt fötin handa mér ef hann hefði vitað þetta, þvílíkt drasl ;)
Annars er bara frábært að vera einn heima, a.m.k. um stund. Er búin að taka til, klára bókina mína, fara í íþróttir, borða góðan mat, horfa á videómynd sem Freyr hefði aldrei gúdderað, klappa köttunum mínum og hafa það gott. Merkilegt í ljósi þess að einu sinni var það það versta sem ég gat hugsað mér að vera ein. Um leið og dauð stund kom var ég búin að taka upp símann og hringja í alla vinina í von um félagsskap. Þetta eru víst einhverjar leifar af því að vera á heimavist/leigja með fólki í allt of mörg ár.
EN ég heimta samt að einhver drekki bjór með mér í kvöld!
Posted at 02:26 am by ausan
Permalink
Er ekki málið að halda 16. júní hátíðlegan? Ætlar einhver að fá sér öl í tilefninu? PLEASE
Annars er Erla mesti aumingi í öllum heiminum. Við erum búnar að ætla saman í sportið alla vikuna, ætlum okkur alltaf að fara eldsnemma á morgnana en höfum sofið yfir okkur fram að þessu. Í gær kom Erla með þetta snilldarplan... hún myndi bara gista hjá mér svo að við gætum vaknað saman og farið í sportið! Hefði getað virkað fínt nema að ég fór í sportið klukkan 6 í morgun en Erla liggur steinsofandi heima hjá mér. Hvar er sanngirnin í því?
Posted at 02:19 am by ausan
Permalink
|
|
|